top of page

Fólkið

Þorgeir.jpg

Oddviti / Sveitarstjóri

Þorgeir Pálsson

Grettir.jpg

Byggingarfulltrúi Strandabyggðar

Grettir Örn Ásmundsson

marta_converted_edited.jpg

Bóndi / Varamaður í sveitarstjórn

Marta Sigvaldadóttir

Myn_edited.jpg

Beitinga- og afgreiðslukona

Aleksandra Pilugina

68df4835-229b-4ae8-9915-7f2d3c282255.JPG

Dýralæknir / Varamaður í sveitarstjórn

Þórdís Karlsdóttir

Mynd_edited.jpg

Starfsmaður í íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Gústaf Hrannar Magnússon

Sigurlaug.jpeg

Starfsmaður á leikskólanum Lækjarbrekku

Sigurlaug Stefánsdóttir

Indridi_imb_3382-1.jpg

Bóndi og hagyrðingur

Indriði Aðalsteinsson

ási.jpeg

Húsasmíðameistari

Ásmundur Hlíðdal Vermundsson

Gummi.jpeg

Útgerðarmaður

Guðmundur Viktor Gústafsson

Á þessum lista erum við fjögur sem höfum starfað í sveitarstjórn sem aðal- og varamenn á þessu kjörtímabili; Þorgeir, Grettir Örn, Marta og Þórdís. Við þekkjum því vel áskoranirnar og verkefnin sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag.

 

Það er mjög mikilvægt að sveitarstjórn á hverjum tíma endurspegli sem best þá samfélagshópa sem móta okkar samfélag. Uppbygging í fiskvinnslu og ferðaþjónustu, innviðauppbygging á vegum verktaka, ofl, byggist t.d. að miklu leyti á aðkomu fólks af erlendum uppruna. Einn öflugasti hluti íbúa Strandabyggðar undanfarin ár, hafa verið eldri borgararnir okkar. Þeir hafa sýnt fádæma lífsgleði og kraft, og verið okkur hinum mikil fyrirmynd. Listi Strandabandalagsins inniheldur líka fulltrúa ungs fólks sem við þurfum að fá inn í hugmyndavinnu og mótun framtíðarskipulags og þjónustu Strandabyggðar. Sé litið á þá uppbyggingu sem er framundan í Brandskjólum, má þar t.d. sjá íbúðir sem henta ungu fólki ásamt þjónustukjarna fyrir aldraða. Strandabandalagið lagði metnað í að koma þessum áherslum inn í aðalskipulagið. Þessar áherslur endurspeglast í því fólki sem nú hefur tekið sæti á lista Strandabandalagsins.

 

Að auki er fjöldi fólks nú þegar í nefndum sveitarfélagsins á vegum Strandabandalagsins og aðrir sem vilja koma þar inn. Baklandið er sterkt.

 

Strandabandalagið hefur látið verkin tala síðastliðin fjögur ár, þrátt fyrir mótbyr og ágjöf.
Við viljum halda því verki áfram og við teljum okkur best til þess fallin, þar sem ekki er gott fyrir neitt sveitarfélag, að þurfa að hægja á uppbyggingu og framkvæmdum, meðan kjörnir fulltrúar öðlast þá reynslu sem þarf. Við höfum þá reynslu!

©2021ステファン・トール。 Wix.comで誇らしげに作成

bottom of page