Verkefni
Framundan eru mikilvæg ár í sögu Strandabyggðar. Strandabandalagið leggur áherslu á eftirfarandi
meginverkefni á næstu fjórum árum.
HÓTELBYGGING
Með tilkomu hótels á Hólmavík skapast mikið tækifæri fyrir sveitarfélagið, íbúa þess og Vestfirði alla. Hótelið sem verður vinnustaður 25-30 manns mun skapa margföldunartekjur í samfélaginu sem og beinar tekjur fyrir sveitarfélagið í formi gatnagerðargjalda, fasteignagjalda og útsvars starfsmanna.

INNVIÐAUPPBYGGING
Innviðir sveitarfélagsins eru margskonar; götur, gangstéttir, útivistarsvæði, mannvirki, fráveita og vatnsveita, svo dæmi séu tekin. Það er ljóst að sveitarfélagið mun ekki geta ráðist í allar þessar framkvæmdir samtímis og því þarf að forgangsraða. Strandabandalagið vill leggja áherslu á íbúðauppbyggingu í Brandskjólum og á Jakobínutúni sem forgangsmál á komandi árum.

HEITT VATN
Heitavatnsboranir í Steingrímsfirði hafa í gegnum árin þótt lofa góðu. Því er jafnvel haldið fram að Gálmaströnd sé eitt mesta heitavatnssvæði á Vestfjörðum. Það felast augljós tækifæri í að virkja og nýta heitt vatn á Gálmaströnd. Þar má nefna nýtingu þess í landeldi á regnbogasilungi í Steingrímsfirði. Strandabyggð þarf að styðja Orkubú Vestfjarða í þessu verkefni, eins og hægt er.

ÖFLUG FERÐAÞJÓNUSTA
Með tilkomu hótels á Hólmavík mun ferðaþjónusta á svæðinu fá einstakt tækifæri til að eflast og vaxa. Þar reynir á kraft íbúa og ferðaþjónustufyrirtækja. Sveitarfélagið getur stutt við þessa þróun með uppbyggingu innviða og öflugrar samfélagsmiðstöðvar, líkt og fyrirhugað er á Jakobínutúni. Fyrir stöndum við sterk með okkar áhugaverðu söfn, hvalaskoðun og einstaka náttúru, en við getum vaxið enn frekar.

ORKUFRAMLEIÐSLA
Í Strandabyggð er nú unnið að nokkrum áhugaverðum virkjanakostum á borð við Kvíslatunguvirkjun í Selárdal ásamt Austurgilsvirkjun og Skúfnavatnavirkjanir sem nú eru í vinnslu. Síðan má nefna Hvalárvirkjun í Árneshreppi. Það er ljóst að áform stjórnvalda um orkuskipti kalla á aukna raforkuframleiðslu á Vestfjörðum. Strandabyggð getur skapað sér lykilstöðu í framtíðinni hvað orkuframleiðslu varðar og laðað að fyrirtæki sem þurfa mikla og stöðuga raforku.
