Lykilþættir árangurs
Árið 2022 settum við í Strandabandalaginu fram nokkur atriði
sem við töldum og teljum enn að séu lykilþættir árangurs við uppbyggingu Strandabyggðar. Skoðum þessi atriði nánar og
hvað hefur áunnist.

Áherslur
1 / Fjölgun íbúa í bæjum og sveitum
Þetta markmið vinnst aðeins með auknu framboði af atvinnu, húsnæði og öflugu skóla- og tómstundastarfi fyrir íbúa.
2 / Fjölgun atvinnutækifæra
Á Hólmavík mun rísa nýtt hótel sem skapar meðal annars störf í ferðaþjónustu og afleiddum greinum. Hér skapast atvinnutækifæri fyrir íbúa til að þjónusta hótelgesti og aðra viðkomandi aðila.
3 / Aukið framboð á húsnæði
Við höfum þegar ýtt úr vör hönnun og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Brandskjólum, þar sem allt að 30 íbúðir munu rísa á næstu árum. Áframhaldandi vinna er mikilvæg til að auka enn húsnæðisframboð.
4 / Meiri verðmætasköpun
Við þurfum að laða að fjárfesta sem sjá sér hag í uppbyggingu á hvers konar framleiðslu sem byggir á aukinni vinnslu afurða eða verðmætri þjónustu.
5 / Skýr sýn í sameiningarmálum
Strandabandalagið hefur haft forystu í að skoða sameingarkosti sveitarfélagsins. Í dag er helst horft til sameiningar við Súðavíkurhrepp og viljum við halda þeirri vinnu áfram á komandi misserum.
6 / Auknar tekjur sveitarfélagsins
Öll ný atvinnustarfsemi skapar tekjur. Nýtt hótel skapar til að mynda tekjur í formi gatnagerðargjalda, fasteignagjalda og útsvars starfsmanna. Fiskvinnsla skapar sömuleiðis útsvarstekjur fyrir sveitarfélagið. Auknar tekjur sveitarfélagsins stuðla svo að betri þjónustu við íbúa og bættum innviðum á svæðinu.
7 / Skynsemi og ráðdeild í rekstri
Í Strandabyggð er almennt lítið svigrúm fyrir hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins. Hér er lítil umframmönnun eða umframfjárfesting. Þvert á móti er hér mikil innviðaskuld. Hins vegar á sveitarfélagið ávallt að sýna skynsemi og ráðdeild í rekstri, innkaupum og fjárfestingum.

Breytingar - Klárum verkin saman!
Strandabandalagið var stofnað af fólki sem hafði þá sannfæringu að mikil þörf væri fyrir pólitíska endurnýjun, ný sjónarmið, nýja stjórnsýsluhætti og nýtt fólk í sveitarstjórn. Niðurstaða kosninganna 2022 sýndi svo ekki var um villst að íbúar Strandabyggðar voru okkar sammála.
Við lögðum áherslu á heilbrigða stjórnsýslu, sem skyldi vera laus við sérhagsmunagæslu, en skyldi þess í stað leggja áherslu á heildarhagsmuni sveitarfélagsins og fólksins sem í því býr. Við sköpuðum raunhæfan valkost, sem fólkið vildi.
Og það var langt frá því að þær breytingar sem við boðuðum væru ástæðulausar. Og aldrei skal maður boða breytingar, breytinganna vegna. Nei, það verður að vera rík ástæða til. Sú ástæða er hins vegar ekki fyrir hendi í dag. Nýtt pólitískt afl hefur nú verið leiðandi í sveitarstjórn Strandabyggðar í fjögur ár. Mörg verkefni eru komin af stað og við viljum fá umboð kjósenda til að klára þau.
Hér nægir að nefna: Húsnæðisuppbygging í Brandskjólum, hótelbygging með tilheyrandi innviðauppbyggingu, endurnýjuð og gerbreytt fráveita, styrking vatnsveitu, aukin sókn í ný atvinnutækifæri, styrking sveitarfélagsins í orkumálum og raforkuframleiðslu, sameiningarviðræður, endurskoðun sameinaðs leik- og grunnskóla, efling tónlistarnáms
og fleira til.
Breytingar eru alltaf til góðs, ef þeirra er þörf. Strandabandalagið er tilbúið að halda áfram þeirri vinnu sem breytingarnar 2022 hafa leitt af sér. Klárum verkin saman!